Skip to main content

Serbía Íbúar | Leiðsagnarvalbb

SerbíaLandlukt lönd


serbneskalandluktBalkanskagaMið-Suðaustur-EvrópuUngverjalandiRúmeníuBúlgaríuMakedóníuSvartfjallalandiBosníu og HersegóvínuKróatíuAlbaníuKósóvóBelgradSlavar6. öldSerbarármiðöldumRómAustrómverska ríkiðkonungsríki SerbaKeisaraveldi Serba16. öldTyrkjaveldiHabsborgaraveldisinsFurstadæmið SerbíaSerbnesku byltingunnifyrri heimsstyrjöldVojvodinaJúgóslavíu10. áratug 20. aldarborgarastyrjaldarinnar í JúgóslavíuSerbía og SvartfjallalandKosóvóSameinuðu þjóðannaKosóvóstríðsinsEvrópuráðinuÖryggis- og samvinnustofnun EvrópuSamstarfi í þágu friðarEfnahagssamstarfi SvartahafsríkjaFríverslunarsamtökum Mið-EvrópuríkjaEvrópusambandinuAlþjóðaviðskiptastofnuninavísitölu um þróun lífsgæðavísitölu um samfélagsþróunfriðarvísitölunniveraldlegt ríkitrúfrelsirétttrúnaðarkirkjunniSerbarMakedónaVlakaBúlgararómversk-kaþólska trúVojvodinaUngverjamótmælendatrúSlóvakarRútenargrísku rétttrúnaðarkirkjunnimúslimarBosníumennRómafólksGyðingartrúlausanguðlausanserbneskakýrillískulatnesku stafrófiVuk Karadžićungverskabosnískakróatískaalbanskarúmenskabúlgarskarútenska












Serbía




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search







































Lýðveldið Serbía

Република Србија
Republika Srbija


Fáni Serbíu

Skjaldamerki Serbíu

Fáni

Skjaldarmerki


Kjörorð:
ekkert

Þjóðsöngur:
Bože Pravde

Staðsetning Serbíu

Höfuðborg

Belgrad

Opinbert tungumál

serbneska

Stjórnarfar

lýðveldi


forseti
forsætisráðherra

Aleksandar Vučić
Ana Brnabić

Sjálfstæði

 - frá Tyrkjaveldi

13. júlí 1878 
 - Hluti af Konungdæmi Serba, Króata og Slóvena

1. desember 1918 
 - Upplausn Serbíu og Svartfjallalands

5. júní 2006 

Flatarmál
 - Samtals
 - Vatn (%)

112. sæti
88.361 km²
~0

Mannfjöldi
 - Samtals (2016)
 - Þéttleiki byggðar

104. sæti
7.058.322
91,1/km²

VLF (KMJ)
- Samtals
- á mann
áætl. 2017
107,131 millj. dala (78. sæti)
15.321 dalir (83. sæti)

VÞL (2015)

Dark Green Arrow Up.svg 0.776 (66. sæti)

Gjaldmiðill

dínar

Tímabelti

UTC+1

Þjóðarlén

.rs

Landsnúmer
381

Serbía (serbneska: Србија / Srbija), opinbert heiti Lýðveldið Serbía (serbneska: Република Србија / Republika Srbija) er landlukt land á Balkanskaga á mótum Mið- og Suðaustur-Evrópu. Serbía á landamæri að Ungverjalandi í norðri, Rúmeníu og Búlgaríu í austri, Makedóníu, Svartfjallalandi, Bosníu og Hersegóvínu og Króatíu í vestri og gerir tilkall til landamæra að Albaníu þar eð Serbía viðurkennir ekki landsréttindi Kósóvó í suðri. Íbúar Serbíu eru um 7 milljónir. Höfuðborgin, Belgrad, er með elstu og stærstu borgum Suðaustur-Evrópu.


Eftir að Slavar fluttust til Balkanskagans á 6. öld stofnuðu Serbar nokkur ríki þar á ármiðöldum. Róm og Austrómverska ríkið viðurkenndu konungsríki Serba árið 1217. Það náði hátindi sínum með skammlífu Keisaraveldi Serba árið 1346. Um miðja 16. öld hafði Tyrkjaveldi hernumið allt það landsvæði sem í dag er Serbía. Serbía var vettvangur átaka milli Tyrkjaveldis og Habsborgaraveldisins sem skömmu síðar hóf að þenjast út til suðurs. Snemma á 19. öld var Furstadæmið Serbía stofnað í Serbnesku byltingunni og hóf röð landvinninga. Eftir mikið mannfall í fyrri heimsstyrjöld og sameiningu við Vojvodina sem áður tilheyrði Habsborgurum, tók Serbía þátt í stofnun Júgóslavíu ásamt öðrum suðurslavneskum þjóðum á Balkanskaga. Júgóslavía leystist upp á 10. áratug 20. aldar vegna borgarastyrjaldarinnar í Júgóslavíu. Eftir að styrjöldinni lauk voru aðeins Serbía og Svartfjallaland eftir í laustengdu ríkjasambandi sem leystist upp árið 2006. Syðsta hérað Serbíu, Kosóvó, sem hafði verið undir stjórn Sameinuðu þjóðanna frá lokum Kosóvóstríðsins 1998-1999, lýsti einhliða yfir sjálfstæði árið 2008 og síðan hafa mörg ríki viðurkennt sjálfstæði þess. Serbía gerir enn tilkall til héraðsins.


Serbía er aðili að fjölda alþjóðasamtaka eins og Sameinuðu þjóðunum, Evrópuráðinu, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Samstarfi í þágu friðar, Efnahagssamstarfi Svartahafsríkja og Fríverslunarsamtökum Mið-Evrópuríkja. Serbía sótti formlega um aðild að Evrópusambandinu 2012 og á í aðildarviðræðum við Alþjóðaviðskiptastofnunina. Serbía er miðtekjuland sem situr ofarlega á ýmsum vísitölulistum eins og vísitölu um þróun lífsgæða, vísitölu um samfélagsþróun og friðarvísitölunni. Stærsti geiri efnahagslífsins er þjónustugeirinn. Þar á eftir koma iðnaður og landbúnaður.



Íbúar |



Trúarbrögð |


Serbía er veraldlegt ríki samkvæmt stjórnarskrá landsins sem kveður á um trúfrelsi. 84.5% íbúa tilheyra rétttrúnaðarkirkjunni sem er stærsta og elsta kirkjudeild landsins. Innan hennar eru aðallega Serbar. Aðrar rétttrúnaðarkirkjur þjónusta minnihlutahópa í landinu eins og Makedóna, Vlaka og Búlgara. Um 6% íbúa aðhyllast rómversk-kaþólska trú, aðallega í Vojvodina þar sem stórir hópar Ungverja búa. Um 1% íbúa aðhyllist mótmælendatrú, aðallega Slóvakar og Ungverjar í Vojvodina. Rútenar í Vojvodina eru í grísku rétttrúnaðarkirkjunni.


Í suðurhéruðum Serbíu eru margir múslimar, um 3% íbúa landsins. Bosníumenn og hluti Rómafólks eru múslimar. Aðeins 578 íbúar eru Gyðingar.


Rétt rúmlega 1% íbúa telur sig trúlausan eða guðlausan.



Tungumál |


Opinbert tungumál Serbíu er serbneska sem 88% íbúa á að móðurmáli. Serbneska er eina evrópska tungumálið sem er ritað til jafns með tveimur ólíkum stafrófum; kýrillísku og latnesku stafrófi. Serbneska kýrillíska stafrófið er opinber ritháttur en latneska stafrófið er í opinberri notkun. Vuk Karadžić.smíðaði kýrillíska stafrófið árið 1814. Könnun frá 2014 sýndi að 47% íbúa vildu heldur nota latneska stafrófið en 36% það kýrillíska en 17% var sama.


Viðurkennd minnihlutamál eru ungverska, bosníska, króatíska, albanska, rúmenska, búlgarska og rútenska. Öll þessi mál eru notuð sem opinber mál í sveitarfélögum þar sem viðkomandi þjóðarbrot er yfir 15% íbúa. Í sjálfstjórnarhéraðinu Vojvodina notar héraðsstjórnin fimm mál auk serbnesku (ungversku, slóvakísku, króatísku, rúmensku og rútensku).




Stjórnsýsluskipting Serbíu












Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Serbía&oldid=1575444“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.108","walltime":"0.141","ppvisitednodes":"value":519,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":26675,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":1353,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":5,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 60.768 1 -total"," 60.56% 36.800 1 Snið:Evrópa"," 58.00% 35.246 2 Snið:Navbox"," 29.18% 17.732 1 Snið:Land"," 9.81% 5.963 1 Snið:Evrópuráðið"," 4.83% 2.934 1 Snið:Rammi"," 4.13% 2.507 1 Snið:Hækkun"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.009","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":743649,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1310","timestamp":"20190321033850","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":136,"wgHostname":"mw1257"););

Popular posts from this blog

Boston (Lincolnshire) Stedsbyld | Berne yn Boston | NavigaasjemenuBoston Borough CouncilBoston, Lincolnshire

Ballerup Komuun Stääden an saarpen | Futnuuten | Luke uk diar | Nawigatsjuunwww.ballerup.dkwww.statistikbanken.dk: Tabelle BEF44 (Folketal pr. 1. januar fordelt på byer)Commonskategorii: Ballerup Komuun55° 44′ N, 12° 22′ O

Trouble understanding the speech of overseas colleaguesHow can I better understand manager or clients with strong accents?Adding more movement and speech at the fundamental level to a highly-sedentary job?Difficulty in understanding Manager's accent(language and communication)How to adjust yourself where your colleagues are not understanding to you?Understanding manager's expectationsForeigner and colleagues using slangHaving difficulty understanding meetingsHow do you breathe when giving a speech?Trouble Waking Up for Emergencies (On-Call)Problems with colleaguesColleagues feeling insecure when I do my work